Hráefni

Uppskrift fyrir tvo

150 g þorskur
5 g paprikuduft
4 g kóríanderduft
3 g hvítlauksduft
3 g cumin
400 ml bjór
370 g hveiti (70 g í kryddblöndu og 300 g í orlydeig)
15 g salt
10 g matarsódi
Tortilla
Hvítlaukssósa
Sriracha sósa
Ferskt grænmeti (salat, gúrka, tómatar, avókadó, laukur)
Olía til djúpsteikingar

Aðferð

Fiskur
  • Skerið fisk í fjóra bita.
  • Blandið saman 70 g hveiti, paprikudufti, kóríanderdufti, hvítlauksdufti og cumin.
  • Í aðra skál fara 300 g hveiti, bjór, salt og matarsódi.
  • Veltið fiskinum upp úr kryddblöndunni og leggið svo í orlydeigið.
  • Djúpsteikið í 4 mín.
Febab og meðlæti
  • Smyrjið tortilla köku með hvítlaukssósu.
  • Setjið fiskinn á kökuna ásamt fersku grænmeti, avókadó og sriracha sósu.