150 g risotto grjón 50 g skalottlaukur smátt skorinn 100 ml rjómi 200 ml vatn 30 g smjör 100 ml hvítvín 50 g rifinn parmesanostur 20 g graslaukur smátt skorinn Olía
Annað
12 ferskir aspasstilkar bitum Olía Smjör
Borið fram með
Parmesan Sítrónu Ólífuolíu
Aðferð
Hitið pönnu á miðlungshita og bætið olíu út á. Svitið skalottlauk á pönnunni. Bætið smjöri og risotto grjónum við og steikið í nokkrar mínútur. Passið að hræra vel svo grjónin brenni ekki við.
Bætið hvítvíninu út á pönnuna og látið sjóða niður. Þegar nær allt hvítvínið er soðið niður er vatni bætt rólega saman við.
Þegar vatn og hvítvín hefur soðið niður er rjómanum bætt við. Hrærið vel svo blandan brenni ekki við.
Þegar risottoið er fullsoðið er parmesanosti og graslauk bætt út á pönnuna. Hrærið vel saman og takið pönnuna af hellunni.
Kryddað með salti og pipar eftir smekk.
Skerið u.þ.b. 5 mm skurði ofan í laxaroðið.
Kryddið roðið með salti og pipar og steikið á miðlungshita með roðið niður í um 2 mínútur.
Eftir 2 mínútur er smjöri bætt á pönnuna og fiskurinn steiktur í 2 mínútur til viðbótar á roðinu. Gott er að nota skeið til að hella smjörinu yfir fiskinn. Því næst má snúa fisknum og steikja í 3 mínútur áður en hann er tekinn af pönnunni.
Steikið aspasbita í smjörinu af laxinum og saltið eftir smekk.
Berið fram með ólífuolíu, sítrónuberki og rifnum parmesanosti.